Farsæll SH30 landar í Grundarfirði.

 Í Farsæll SH 30, Fréttir

Farsæll SH 30 kom til hafnar í Grundarfirði með 49 tonn. Þar af voru um 16 tonn af ufsa, 11 tonn af þorski, 9 tonn af ýsu og 5 tonn af karfa. Minna í öðrum tegundum. Farsæll var meðal annars á veiðum við Grunnhala og Bjargbleyðu.

Áætlað er að Farsæll haldi aftur til veiða að löndun lokinni.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter