„Fínasta veður“

 Í Arnar HU 1, Fréttir

Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Aflinn um borð samsvarar um 727 tonnum upp úr sjó, þar af um 368 tonnum af ufsa og 177 tonnum af gullkarfa. Aflaverðmæti er um 195 milljónir.

Heimasíðan hafði samband við Guðmund Henry Stefánsson skipstjóra og spurði hann um túrinn.

„Við fórum frá Sauðárkróki 8. maí og vorum á Vestfjarðarmiðum og suðvestur miðum. Veiðin var frekar róleg en það var aðeins ufsi í restina. Við lönduðum 19.874 kössum úr skipinu og það var fínasta veður, fyrir utan tvo daga,“ sagði Guðmundur Henry.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter

Drangey