„Fiskeríið var mjög gott“
Málmey SK1 er á leið til hafnar í Grundarfirði. Heildarmagn afla um borð er um 100 tonn og uppistaða aflans er þorskur og ufsi.
Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.
„Við vorum tvo sólarhringa á veiðum og vorum í Jökuldýpi og á Eldeyjarbanka. Fiskeríið var mjög gott en veðrið var frekar risjótt,“ sagði Þórarinn.