„Góð veiði á köflum“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 114 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum tvo og hálfan sólarhring á veiðum og vorum á Halanum og Þverálshorni. Veiðarnar gengu ágætlega vel, góð veiði á köflum. Það var leiðindaveður fyrsta sólarhringinn en ágætt eftir það,“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter