Góð veiði var á Halanum.

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki með 147 tonn af því voru um  117 tonn af þorski, 13 tonn af ýsu, 7 tonn af ufsa og 2 tonn af karfa. Minna í öðrum tegundum. Málmey var meðal annars á veiðum við Sléttugrunn, Hala og Sporðagrunn. Veiðin var róleg á Sléttugrunni og Sporðagrunni, en góð veiði var á Halanum. Veðrið var fínt framan af í túrnum en undir lok túrsins var orðið leiðinda veður.

Áætlað er að Málmey haldi aftur til veiða að löndun lokinni.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter