„Góð veiði“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 199 tonn og uppistaða aflans var þorskur.

Heimasíðan hafði samband við Hermann Einarsson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum fjóran og hálfan sólarhring á veiðum í kantinum vestan við Halann. Góð veiði og ágætis veður allan tímann,“ sagði Hermann.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter

Málmey