Gott veður allan túrinn

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð er um 211 tonn og uppistaða aflans er ufsi.

Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum fimm sólarhringa á veiðum. Við vorum á Eldeyjarbanka og á Belgableyðunni. Veiðarnar gengu alveg þokkalega vel og veðrið var mjög gott allan túrinn.“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter