„Gullkarfa og ýsuveiðar hafa gengið vel“

 Í Arnar HU 1, Fréttir

Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki í gær eftir 30 daga veiðiferð en hann millilandaði í Reykjavík 21.febrúar s.l. Aflinn í seinni hluta veiðiferðarinnar var 329 tonn af fiski upp úr sjó eða 12.595 kassar. Aflaverðmætið er 100 milljónir. Heimasíðan ræddi við skipstjóra Arnars „Eftir millilöndun í Reykjvík 20. og 21. febrúar s.l byrjuðum við á Suðvesturmiðum en fórum svo þaðan vegna veðurs og enduðum veiðiferðina við Víkurál. Gullkarfa og ýsuveiðar hafa gengið vel en kvótinn of lítill miðað við ástandið á miðunum, það veldur flestum vandræðum við veiðar á öðrum tegundum. Það er búið að vera frekar leiðilegt veður mestan hluta veiðiferðarinnar“.
Heildaraflinn í veiðiferðinni samsvarar 856 tonnum af fiski upp úr sjó og 30.666 kössum. Aflaverðmæti túrsins er 268 milljónir.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter