Hafdís SK 4 kom franskri skútu til aðstoðar á Faxaflóa

Áhöfnin á Hafdísi SK-4 kom franskri skútu til aðstoðar á Faxaflóa síðdegis í gær eftir að skútan varð rafmagns- og sambandslaus. Hafdís var þá að veiðum á Syðrahrauni þegar Guðmundur Erlingsson skipstjóri varð skútunnar var á ratsjá, en hann hafði heyrt Landhelgisgæsluna reyna að hafa samband við skútuna í þónokkurn tíma, án árangurs.

„Ég var búinn að sjá hana á radarnum og vissi að það var eitthvað að. Svo allt í einu tók hún niður seglin og var bara komin á rek,“ segir Guðmundur.

Skömmu síðar hafði Landhelgisgæslan samband við Hafdísi og bað Guðmund og áhöfn hans að kanna aðstæður og veita aðstoð, þar sem þeir voru eini báturinn á svæðinu. Þegar Hafdís var komin upp að skútunni tókst þeim að ná sambandi við áhöfnina. Að sögn Guðmundar var fólkið um borð orðið aðframkomið og óskaði eftir því að skútan yrði tekin í tog.

Áhöfn Hafdísar kom þá dráttartaug yfir í skútuna og segir Guðmundur það hafa gengið mjög vel, enda veðrið gott þó það hafi verið dálítil undiralda. Hafdís dró hana í um klukkustund áður en björgunarsveit frá Akranesi kom á vettvang og tók við aðstoðinni.

Björgunarsveitarmenn komu bæði á léttabát og stærra björgunarskipi og fóru um borð í frönsku skútuna á meðan Hafdís hélt áfram að draga hana. Guðmundur segir að eftir að björgunarsveitin kom á vettvang hafi samskiptin orðið töluvert einfaldari.

„Þá voru komin samskipti á milli skipanna á íslensku, sem var nú heldur betra,“ segir hann.

Skútan er frönsk og að sögn Guðmundar um 24 metra löng, en hann mundi ekki nafnið nákvæmlega, en hér að neðan má sjá nokkrar myndir af atburðinum.

Aðspurður segir Guðmundur að veiðar hafi gengið mjög vel hjá Hafdísi undanfarið, það hafi verið mokveiði í síðustu þremur veiðiferðum í það minnsta.