„Hafísinn hefur verið að stríða okkur“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 116 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Andra Má Welding Hákonarson og spurði um túrinn.

„Við vorum þrjá sólarhringa á veiðum og vorum á Strandagrunni, Þverálshorni og í Þverálnum. Það var fín veiði, fengum mjög fína veiði í Þverálnum. Hafísinn hefur verið að stríða okkur síðustu daga og það væri kærkomið að fá góða norðaustan átt svo hann fari aftur til síns heima. Það var bræla fyrsta sólarhringinn en svo bara blíða eftir það,“ sagði Andri.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter