„Hörku góð veiði í þorskinum“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 102 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum tæpa tvo sólarhringa á veiðum og vorum á Kögurgrunni. Það var hörku góð veiði í þorskinum og nánast blíða allan tímann,“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter