„Komnir eru rúmlega 22 þúsund kassar“

 Í Arnar HU 1, Fréttir

Frystitogarinn Arnar HU1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 876 tonn upp úr sjó, þar af um 171 tonn af þorski, 279 tonn af ufsa og 272 af gullkarfa. Aflaverðmæti eru um 230 milljónir.  Heimasíðan hafði samband við Guðjón Guðjónsson skipstjóra og Jónas Þorvaldsson bátsmann.

„Við fórum út að kvöldi 9. maí og veiðiferðin tók  27 daga. Veitt var á Kögurgrunni, Víkurál og Skerjadýpi. Veðrið hefur verið gott og veiðar hafa gengið þokkalega en komnir eru  rúmlega 22 þúsund kassar,“ segja þeir Guðjón og Jónas.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter