„Leiðinda bræla í restina“
Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 75 tonn og uppistaða aflans var þorskur og ufsi. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.
„Við vorum þrjá sólarhringa á veiðum og vorum í Jökuldýpi og Selvogsbanka. Veiðarnar voru fínar einn dag en frekar rólegar hina dagana. Veðrið var ágætt fyrstu dagana en leiðinda bræla í restina,“ sagði Þórarinn.