„Lítið um þorsk fyrir Norðurlandi“
Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 104 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.
„Við vorum fimm sólarhringa á veiðum og vorum á Rifsbanka, Sléttugrunni og Groves. Veiðarnar voru frekar dræmar þennan túrinn, lítið um þorsk fyrir Norðurlandinu. Veðrið var ágætt mest allan túrinn en bræla í tvo sólarhringa,“ sagði Þórarinn.