Lítil veiði norðan við Hraun

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK 1 kom til hafnar á Sauðárkróki í morgun til löndunar. Heildarmagn afla um borð var um 162 tonn þar af voru um 143 tonn af þorski, 6 tonn af ufsa og 2 tonn af karfa. Minna í öðrum tegundum. Skv. upplýsingum frá Þórarni Hlöðverssyni skipstjóra var lítil veiði norðan við Hraun, þar sem þeir voru á veiðum en ágæt veiði var við Digranesflak. Veðrið hefur einnig verið gott í túrnum.

Áætlað er að Málmey haldi aftur til veiða í kvöld að löndun lokinni.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter