Málmey landar á Sauðárkróki.

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki með 137 tonn, af því voru um 123 tonn af þorski. Minna í öðrum tegundum. Málmey var meðal annars á veiðum norðan við Kolbeinsey og við Ostahrygg.

Áætlað er að Málmey haldi aftur til veiða að löndun lokinni.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter