Málmey SK 1 er á heimleið og er væntanleg að Sauðárkrókshöfn innan skamms. Heildarmagn afla í þessari veiðiferð voru um 95 tonn, þar af um 57 tonn af þorski og um 17 tonn af ýsu.
“Við fórum vestur í Víkurál og þá var komið leiðindaveður og það einkenndi túrinn svolítið, leiðinlegt veður allan tímann og veiðin eftir því. Þegar við gáfumst upp á Víkurál fórum við á Strandagrunn þar sem var sama sagan en enduðum svo á Reykjarfjarðarál í rólegri veiði í brjáluðu veðri.” Sagði Þórarinn Hlöðversson, skipstjóri, um veiðiferðina.