Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með tæp 137 tonn af afla, mest af þorski eða tæp 97 tonn og svo tæp 30 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum.
Málmey var á aðallega veiðum í Reykjarfjarðarál og á Strandagrunni.

“Túrinn gekk bara ágætlega. Þetta fór hægt af stað svona fyrstu tvo dagana í Reykjarfjarðarálnum en svo færðum við okkur á Strandagrunn og þar var mokveiði. Enduðum svo aftur í Reykjarfarðarál í ýsu og þar var ágætis kropp.” Sagði Þórarinn Hlöðversson, skipstjóri. Hann sagði hafa verið blíðuveður allan túrinn, það gerðis ekki betra á þessum árstíma.

Málmey