Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með rúm 81 tonn af afla, þar af voru um 64 tonn af þorski og tæp 8 tonn af ýsu, minna í öðrum tegundum.
Málmey var meðal annars á veiðum á Strandagrunni, í Reykjafjarðarál og við Ostahrygg, en Ostahryggur dregur nafnið sitt af því að þegar dregið er á þessu svæði kemur oft mikið af svampi í veiðarfærin sem minnir helst á ost.