Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með heildarafla upp á 125 tonn, aflinn samanstóð af tæpum 79 tonnum af þorski, rúmum 27 tonnum af ýsu og tæpum 8 tonnum af ufsa, en minna um aðrar tegundir.

“Þessi túr gekk bara fínt í heildina. Það komur þarna tveir dagar þar sem við fengum helminginn af þorsk-skammtinum, í Heiðardalnum og svo á Sporðagrunni. Eftir það vorum við í ágætis kroppi af ýsu og þorski í bland í Reykjafjarðarál og á Skagagrunni.” Sagði Hermann Einarsson, skipstjóri. Hann sagði veðrið hafa verið fínt, helmingi minna frost en í landi, þó hafi reyndar verið kaldi einn daginn.

Málmey