Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 er á leið til löndunar á Sauðárkróki í dag með heildarafla upp á rúm 158 tonn. Þar af voru tæp 74 tonn af þorski, tæp 52 tonn af ýsu og rúm 20 tonn af karfa. Málmey var á veiðum við Grunnkant og Látragrunn.

“Þetta gekk bara fínt hjá okkur. Við vorum vestur í Grunnkanti og Látragrunni og þar var fín veiði bæði af þorski og ýsu og gott veður allan tímann, það er nóg af þorski út um allt núna.” Sagði Þórarinn Hlöðversson, skipstjóri, en þeir eru á landleið, aðeins fyrr en venjulega þar sem það gekk svo hratt að klára að veiða skammtinn. En að sögn Þórarins er vitlaust veður á leiðinni á svæðið núna og því ágætis tilviljun að þeir hafi náð að klára skammtinn og koma sér í land áður en það skellur á.