Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 kom til löndunar á Sauðárkrókshöfn í morgun með um 106 tonn af afla, þar af voru um 73 tonn af þorski og um 15 tonn af ýsu. Málmey var meðal annars á veiðum á Halanum og Reykjafjarðarál.

“Við fórum beint vestur, byrjuðum á Kögurgrunni og svo á Halanum, þar var mjög góð veiði í þorski og veðrið gott. Svo færðum við okkur í Reykjafjarðarál í ýsuleit vegna þess að fyrir vestan var lítið af ýsu og slæm spá framundan. En svo var líka leiðindaveður fyrir norðan og léleg ýsuveiði. Svo við börðumst í brjáluðu veðri þarna síðasta sólarhringinn til þess að reyna að kroppa eitthvað.” Sagði Þórarinn Hlöðversson, skipstjóri, feginn að vera kominn í land og hættur að veltast í bili. En Málmey heldur aftur til veiða á morgun og ekki er veðurspáin skárri framundan.

Málmey