Málmey SK 1 er á heimstíminu og landar í fyrramálið við Sauðárkrókshöfn. Í skipinu eru um 104 tonn af fiski, þar af um 74 tonn af þorski og um 19 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum.
Málmey hóf þessa veiðiferð á Hvalbaksgrunni og á Hvalbakshalla fyrir suð-austan land, þeir tóku síðan nokkur höl á Papagrunni áður en þeir færðu sig aftur á Hvalbakshalla. Á milli Papagrunns og Hvalbakshalla er veiðisvæði sem kallað er Ölæðið eða Ölæðisbanki, en sagan segir að skipstjóri nokkur hafi verið að koma heim eftir siglingu frá Þýskalandi og hafi kastað þarna í ölæði á heimleiðinni og fengið góðan afla og síðan er veiðisvæðið þekkt sem ölæðið (Bændablaðið, 21. tbl. 2019).
Málmeyjarmenn munu þá líklega koma sér vel fyrir í setustofunni í kvöld til þess að fylgjast með leik Tindastóls og Grindavíkur og þó að minna verði um ölæði hjá þeim eru þeir að minnsta kosti búnir að flagga fyrir tilefnið, eins og sést á meðfylgjandi mynd sem Davíð Þór Helgason, undirstýrimaður, sendi okkur.