Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með 100 tonn, þar af voru um 72 tonn af þorski og um 16 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum.
Málmey hóf veiðiferðina við Djúpkrók en þar var bæði lítið um og lítill þorskur. Þá færðu þeir sig að kantinum við Halann þar sem þeir eyddu mestum tíma, en enduðu svo á að taka nokkur höl á Reykjafjarðarál og á Skagagrunni.