Málmey SK 1 er væntanleg í land við Sauðárkrókshöfn í kvöld og þá verður allur floti FISK Seafood kominn í land fyrir sjómannadag.
Málmey er með 148 tonn af afla um borð og skiptist hann í um 115 tonn af þorski og um 23 tonn af ufsa, en minna í öðrum tegundum. Eins og kom fram í síðustu frétt af Málmey þá landaði hún fyrri hluta veiðiferðarinnar á Ísafirði, eða 70 tonnum. Þessi veiðiferð gerir þá 218 tonn í heildina.
Seinni hluta veiðiferðarinnar hélt Málmey sig á Þveráli og Þverálshorni.
Við óskum sjómönnum öllum til hamingju með sjómannadaginn og vonumst til að sjá ykkur sem flest á hátíðarhöldunum á Sauðárkrókshöfn á morgun.