Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með tæp um 136 tonna afla, þar af voru um 104 tonn af þorski og um 19 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum. Málmey var á veiðum á Ostahrygg, Reykjafjarðarál og á Tungu í restina og að sögn Davíðs Þórs Helgasonar, undirstýrimanns, var veiðin fín og ágætis veður allan túrinn.
Það bar þó til tíðinda í þessum túr að þeir fengu heimsókn, sem gerist nú ekki oft úti á ballarhafi, en þegar þeir voru staddir á Reykjarfjarðarál kom varðskipið Freyja í heimsókn, en skipið var þar við reglubundið eftirlit. Aðspurður um hvort Landhelgisgæslan hefði fundið eitthvað grunsamlegt um borð sagði Davíð svo ekki vera, enda ekkert nema sómamenn um borð í Málmey SK 1.