Málmey SK 1 kom í land við Sauðárkrókshöfn á miðnætti og fer löndun fram í dag. Magn afla um borð eru 110 tonn, þar af um 85 tonn af þorski og um 13 tonn af ýsu, en minna í öðrum tegundum. Málmey var á veiðum fyrir austan land og kastaði meðal annars á Digranesflaki og Glettinganesflaki. Á leiðinni heim tóku þeir nokkur hol á Grímseyjarsvæðinu og á Skagagrunni.