Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með 115 tonna afla. Þar af voru um 94 tonn af þorski og um 13 tonn af ýsu, en minna af öðrum tegundum. Málmey var að veiðum austur á Digranesflaki þennan túrinn.

Ólafur Bjarni Haraldsson var við stjórnvölinn í túrnum og var þetta í fyrsta sinn sem hann fór sem skipstjóri á Málmey. Óli þekkir þó skipið vel enda hefur hann verið fyrsti stýrimaður um borð undanfarin ár.

„Þetta gekk bara vel, hvað hefði maður getað beðið um betra?“ sagði Óli um fyrsta túrinn í skipstjórastólnum.

Veðrið var gott á miðunum og veiðin gekk ágætlega þótt hvergi hefði verið um neitt mok að ræða. „Þetta var bara ágætis nudd. Það var hvergi neitt mok á miðunum, þannig að við nudduðum þessu saman í rólegheitunum.“

Heimferðin var öllu leiðinlegri, með skítaveðri og töluverðum veltingi, en það skyggði lítið á ánægjuna með túrinn. Óli var ánægður með að hafa loksins fengið að prófa sig áfram í skipstjórastólnum og sagði reynsluna hafa verið bæði skemmtilega og krefjandi.

Fyrsti túrinn sem skipstjóri er því kominn í hús hjá Óla – og sömuleiðis fyrsti túrinn eftir fæðingarorlof. Svo verður bara að koma í ljós hversu langt er í að erfinginn láti sjá sig um borð.