Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 kom til löndunar við Sauðárkrókshöfn í morgun með um 88 tonna afla, þar af um 76 tonn af þorski en næst mest var af ýsu, um 7 tonn.

Málmey var á veiðum fyrir norð-austan land, og kastaði meðal annars á Langaneskanti, Digranesflaki og í Hattabúð, sem er enn eitt skemmtilegt heiti á fiskimiðum en í þetta skiptið fundust engar skýringar á nafninu og því óskum við eftir upplýsingum um það hvers vegna fiskimiðin sem eru staðsett á um það bil 66.2° Norður og -12.4° Vestur eru kölluð þessu nafni. Jafnframt lofum við þeim sem gefur góða skýringu FISK-húfu í verðlaun.