Málmey SK 1 landar 143 tonnum af afla við Grundarfjarðarhöfn í dag. Uppistaða aflans voru um 71 tonn af þorski og um 44 tonn af steinbít. Málmey var aðallega á veiðum á Halanum og Grunnkanti.
Hermann Einarsson, skipstjóri, sagði túrinn hafa gengið mjög vel, það hafi verið blíðuveður og fín veiði, nema kannski síðasta sólarhringinn, þá var frekar rólegt.