Málmey SK 1 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í gær með 136 tonna afla. Uppistaða aflans voru um 56 tonn af þorski, um 52 tonn af steinbít og um 11 tonn af ýsu en minna í öðrum tegundum.
Málmey var á einungis veiðum á Látragrunni í þessari veiðiferð og það er einmitt ástæða þess að löndun fór fram í Grundarfirði, en Látragrunn er beint vestur af Látrabjargi og mun styttra að sigla þaðan á Grundarfjörð en Sauðárkrók.
Málmey hélt svo aftur til veiða samdægurs eftir eldsnögga löndun og áhafnarskipti.