Málmey SK 1 millilandar á Ísafirði

Málmey SK 1 kom til hafnar á Ísafirði í morgun til löndunar með 70 tonn, þar af um 37 tonn af þorski og um 25 tonn af ýsu. Málmey hefur verið á veiðum á Pollinum, Deildargrunni og Kantinum við Halann.

Markmiðið með millilönduninni er að ná hráefni fyrr í land, þar sem að Málmey er væntanleg í land á föstudagskvöld (fyrir Sjómannadag) og aflinn færi ekki í vinnslu fyrr en á mánudagsmorgun. Hinsvegar nýtist millilöndunin í fleira, en heyrst hefur að allir áhafnarmeðlimir á Málmey ætli að skella sér í klippingu á Ísafirði í dag til þess að vera klárir fyrir sjómannadagshelgina um leið og þeir mæta í land!