Málmey SK1 landar á Sauðárkróki

Málmey SK 1 landar á Sauðárkróki í dag um 114 tonnum af afla, þar af um 104 tonnum af þorski.

Málmey var að veiðum á Sporðagrunni og norður af Kolbeinsey í þessari veiðiferð. Enn á ný var afleysingaskipstjóri við stjórnvölinn og að þessu sinni var það Ágúst Óðinn Ómarsson, sem að öllu jöfnu er skipstjóri á Drangey SK-2.

Ágúst sagði túrinn hafa gengið ljómandi vel. Leiðindaveður hefði verið framan af veiðiferðinni en úr rættist og fengu þeir góðan dag norðan við Kolbeinsey, þar sem var fínasta veiði. Ekki skemmdi heldur fyrir að Ágúst þekkti vel til um borð, enda var hann skipstjóri á Málmey fyrir um átta árum og þótti honum sérstaklega gaman að hitta aftur gamla samstarfsfélaga, enda góður andi um borð í skipinu.

„Það var svo einstaklega ánægjulegt að fá aftur að smakka béarnaise-sósuna hjá Viktori Guðmundssyni matsveini, en hún er alveg einstök hjá honum – að mínum kokkum ólöstuðum,“ sagði Ágúst.