Málmey SK1 landar á Sauðárkróki

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki með 123 tonn, af því voru um 99 tonn af þorski, 15 tonn af ufsa, 2 tonn af ýsu og 2 tonn af karfa. Minna í öðrum tegundum. Málmey var meðal annars á veiðum við Sléttugrunn og Rifsbanka.

Málmey er nú komin í jólafrí og áætlað er að haldið verði aftur til veiða eftir hátíðarnar.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter