Málmey SK1 landar á Sauðárkróki.
Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 165 tonn, af því voru um 132 tonn af þorski, 12 tonn af karfa, 8 tonn af ýsu og 2 tonn af ufsa. Minna í öðrum tegundum. Málmey var meðal annars á veiðum við Sléttugrunn og Kantinn vestan við Halann.
Áætlað er að Málmey haldi aftur til veiða að löndun lokinni.