„Mjög fín veiði í ufsa“

 Í Farsæll SH 30, Fréttir

Farsæll SH30 kom til hafnar í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð var um 76 tonn. Heimasíðan hafði samband við Stefán Viðar Ólason stýrimaður og spurði út í túrinn.

„Við fórum suður á Selvogsbanka í þessum túr, þar sem var mjög fín veiði í ufsa. Við vorum um tvo og hálfan sólarhring á veiðum. Það var fínasta veður allan túrinn og uppistaða aflans var lang mest ufsi,“ sagði Stefán.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter