Mjög fín veiði

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 er á leið til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð er 138 tonn, uppistaða aflans er þorskur.

Heimasíðan hafði samband við Ágúst Ómarsson skipstjóra og spurði um túrinn.

„Veiðiferðin tók rúma þrjá sólarhringa og við vorum allan tímann á Halanum. Mjög fín veiði en norðaustan kaldafíla allan túrinn,“ sagði Ágúst.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter