„Mjög góð veiði í þorskinum“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 139 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum rúma fjóra sólarhringa á veiðum og vorum á Strandagrunni, Halanum og Þverálshorni. Það var mjög góð veiði í þorskinum en rólegra í ufsa og ýsu. Veðrið var frekar leiðinlegt allan túrinn,“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter