„Mjög góð veiði“

 Í Fréttir, Málmey SK 1

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 205 tonn og uppistaða aflans var þorskur.

Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði út í túrinn.

„Við vorum fjóra sólarhringa á veiðum og vorum á Dohrnbanka og Skagagrunni. Mjög góð veiði og þær gengu vel. Það var ágætisveður allan tímann,“ sagði Þórarinn.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter