Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er: FISK Seafood, Háeyri 1, 550 Sauðárkróki, fisk@fisk.is www.fisk.is.
Persónuverndarfulltrúi: personuvernd@fisk.is
Tilgangur vöktunarinnar: Vöktun er í öryggis- og vinnslustjórnunarskyni.
Heimild til vinnslu: Vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna FISK Seafood af öryggis- og vinnslustjórnunarskyni.
Tegundir persónuupplýsinga: Unnið er með myndefni sem verður til í rauntíma, þar má sjá einstaklinga sem fara um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra.
Viðtakendur: Allt myndefni er aðgengilegt í brú skipa í rauntíma. Efni vöktunar er ekki deilt með 3ja aðila þar sem það er ekki vistað.
Miðlun til þriðju landa og varúðarráðstafanir: Engin miðlun til þriðju landa fer fram.
Varðveislutími myndefnis: Allt myndefni er í rauntíma og hvernig vistað í gangagrunna hvorki hjá FISK Seafood né hjá þriðja aðila.
Réttindi einstaklinga: Einstaklingar eiga rétt að fá upplýsingar um að rafræn vöktun sé í gangi og hvernig gagnasöfnun sé háttað. Að öðru leyti fer um réttindi þín samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679.
Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd: Þeir sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þeir telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum.
Sjálfvirk ákvarðanataka: Á ekki við