„Rákum í góða ufsaveiði“

 Í Drangey SK 2, Fréttir

Drangey SK2 kom til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð var um 158 tonn og uppistaða aflans var ufsi. Heimasíðan hafði samband við Ágúst Ómarsson skipstjóra og spurði um túrinn.

„Við rákum í góða ufsaveiði á Skagagrunni og vorum tvo og hálfan sólarhring á veiðum. Veðrið hefur verið hundleiðinlegt allan túrinn,“ sagði Ágúst.

Skrifaðu hér fyrir neðan og smelltu á Enter