Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með tæp 98 tonn af afla. Þetta var nokkuð blandaður afli, um 26 tonn af ýsu, um 21 tonn af þorski, um 24 tonn af skarkola og um 16 tonn af steinbít, en minna í öðru tegundum.

Sigurborg var meðal annars á veiðum við Flökin og í kringum Bjarg.

“Við erum nokkuð lukkulegir með okkur.” sagði Ómar Þorleifsson, skipstjóri, en veiði hefur gengið mjög vel á Sigurborgu undanfarnar vikur. “Það hefur verið ágætis kolaveiði það sem af er janúar og þessi síðasti túr gekk mjög vel. Veðrið er einstakt miðað við árstíma og jöfn og góð veiði. Einmitt rétta blandan af tegundum og það væri frábært ef þetta helst svona í einhvern tíma.”