Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með 90 tonna afla. Uppistaða aflans var um 38 tonn af steinbít, um 27 tonn af þorski og um 10 tonn af ýsu.
Sigurborg var meðal annars á veiðum á Grunnkanti og við Flökin.