Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í gærkvöldi með 84 tonn af af afla. Uppistaða aflans voru um 26 tonn af ýsu, um 18 tonn af þorski og um 16 tonn af steinbít, en minna í öðrum tegundum. Sigurborg hóf veiðiferðina á Flökunum og í kringum Bjarg en færði sig svo að Grunnkanti og Herðatré, og endaði svo aftur á Flökunum tíðræddu, sem eru staðsett um 12 sjómílur suð-vestur af Bjargi og við vitum ekki enn deili á. Við hvetjum því lesendur aftur til þess að senda okkur línu ef þeir vita um hvaða flök ræðir.