Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 landaði við Grundarfjarðarhöfn í morgun 104 tonnum af blönduðum afla, þar af um 36 tonn af karfa, um 26 tonn af ýsu, um 18 tonn af þorski og um 10 tonn af ufsa.

Sigurborg byrjaði og endaði veiðiferðina á Jökultungu en tók einnig hol vestan við Garðskaga, á Búrbanka, á Flökunum og fleiri stöðum.

Ómar Þorleifsson, skipstjóri, sagði túrinn hafa gengið bara ágætlega. Þeir hefðu reyndar þurft að sækja þorskinn alla leið út í Kantinn við Halann, sem þeir gera ekki venjulega., vegna þess að veiðin hefur verið frekar dræm á grunnslóðinni.

Ómar sagði það hafa verið leiðindaveður út af Vestfjörðum en heldur skárra sunnan við kjálkann.