Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með tæp 76 tonn af fiski, þar af voru um 20 tonn af þorski og svipað magn af ýsu, um 13 tonn af skarkola og um 9 tonn af karfa en minna í öðrum tegundum.
Sigurborg byrjaði túrinn á Flökunum en færði sig svo vestur fyrir á Grunnkant og vestur af Mána, en endaði svo aftur á Flökunum og á Flákakanti.