Sigurborg SH-12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með 56 tonna afla. Aflinn var nokkuð blandaður að þessu sinni, en mest var af ýsu, eða tæp 18 tonn. Þar á eftir komu um 14 tonn af karfa og um 11 tonn af þorski.
Sigurborg var á veiðum á nokkrum stöðum í veiðiferðinni, meðal annars á Flökunum, Skápnum og Straumnesbanka. Það var því víða komið við og aflinn blandaður eftir því – enda virðist stundum þurfa að kíkja í fleiri en einn Skáp til að fylla lestina.