Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með um 62 tonn af blönduðum afla sem skiptist í um 22 tonn af karfa, um 15 tonn af ýsu, um 10 tonn af þorski og um 6 tonn af skarkola en minna í öðrum tegundum. Sigurborg var meðal annars á veiðum á Norðurkanti, Látragrunni og á Herðatré.