Sigurborg SH 12 landar við Grundarfjarðarhöfn í dag um það bil 72 tonnum af afla sem skiptist nokkuð jafnt, eða í um 20 tonn af þorski, um 17 tonn af ýsu og um 17 tonn af karfa – svo voru um 5 tonn af skarkola og um 4 tonn af ufsa.
Sigurborg fór víða í veiðiferðinni, en þeir köstuðu fyrst vestur af Nesi og fóru svo suður og tóku nokkur höl vestan við Sandgerði, áður en þeir héldu alla leið norður á Halann.