Sigurborg SH 12 landar í Grundarfirði

Sigurborg SH 12 kom til löndunar við Grundarfjarðarhöfn í morgun með um 68 tonna blandaðan afla ,þar af um 19 tonn af þorski, um 17 tonn af ýsu, um 16 tonn af karfa og um 5 tonn af skarkola, en minna í öðrum tegundum.

Sigurborg hóf tveiðiferðina á Búrbanka en færði sig síðan vestan við Garðsskaga þar sem hún var í ágætis ýsuveiði. Hún hélt svo áfram á Jökultungu og norður á hala, en endaði túrinn á Herðatré í kola.